Velkomin/n

"It.s the character that makes the difference"

22.01.2009 12:37:00 / antonrunars

Hlustaðu á Voice 98.7 kl 15:00 í dag!!

Þá er komið að leiknum en hann er í kvöld. Þetta verður algjör veisla frá upphafi til enda. Allir klárir i slaginn, allir tilbúnir að leggjast á eitt,allir vinna vilja,hellingur af fólki og brjáluð stemning frá upphafi til enda! Búist við 1200 manns á leikinn.

Ef þú hefur áhuga á að hlusta á okkur í útvarpinu í dag stilltu þá inn á 98.7 ef þú ert á Akureyri eða e-h staðar í eyjafirðinum eða farðu inn á þessa síðu  http://voice.is/um-voice/sida/utsendingarsvaedi-voice og klikkaðu á gluggann vinstra megin uppi horninu sem stendur á hlusta í beinni kl 15:00 þá heyriru okkur rugla e-h um leikinn:;)

Við ætlum okkur sigur það er klárt mál!!!!

Akureyri-Víkingur kl 19:30 í kvöld í höllinni...


Menn verða vera grimmir!!

Rúnarsson


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2009 17:51:31 / antonrunars

2 dagar í 1 leik

Þá fer að líða að 1 leiknum okkar sem er á fimmtudaginn. Góð æfing i gær, útihlaup fyrir æfinguna og svo 1:30 klst æfing i framhaldinu af hlaupinu á góðu tempói. Menn er i góðu formi og tilbunir í 1 leik.Það verður frítt inn á leikinn i boði KEA og aðsjalfsögðu verður hljómsveit til að spila fyrir leik og í hálfleik.

Þetta verður e-h i þessa átt:


Kea býður frítt á leikinn.


Stórsveit tónlistarskóla Akureyrar verður á svæðinu!


Þetta verður ruddalegt!!!!!!!!!!!!


Eftir æfinguna í gær kiktum við Heiddi og Andri snær útá Þelamörk í heita pottinn til að slaka á eftir erfiða æfingu og helgi. 3 leikir og hörku æfing.

Það var svo skotæfing í hádeginu i dag i klst sem var bara nokkuð góð. Alltaf gaman að taka skotæfingu eða aukaæfingar. Svo er aftur æfing i kvöld kl 19:30!!

Allt að gerast,allt í gangi, svona á þetta vera..........



Akureyri-Víkingur á fimmtudag !




» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 01:24:14 / antonrunars

Góð helgi að baki

Föstudagur
Hittumst um hádegið á Borgarbrautinni. Lögðum svo af stað til Rvk á 3 bilum frá höldur. Ég fór með Jonna Magga þeim mikla meistara og Hödda. Sennilega ein skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í langan tíma. Það var farið yfir ansi margar skemmtilegar sögur úr boltanum sem og öðru. Mun seint gleyma þessari mögnuðu ferð. Við vorum svo komnir í bæinn um 5 leytið og keyrðum beint upp á Ásvelli til að fara keppa æfingaleik a móti Haukum. Við byrjuðum leikinn mjög vel og vorum 17-9 yfir i hálfleik. Vörnin,sóknin og allur pakkinn var virkilega að standa fyrir sinu. Jonni að stjórna miðjunni,höddi og tröllin að stjorna vörninni og markmennirnir að verja vel. Leikurinn endaði með 7 marka sigri okkar og það mjög sannfærandi. Hrikalega góður leikur og lofar góðu.

Ég og heiddi Legend skelltum okkur i bio um kvöldið á myndina

http://www.filmofilia.com/wp-content/uploads/2008/07/rocknrolla-poster_m.jpg

og hún var mjög góð. Við vorum sammála um að það hefði matt vera meiri action i myndinni og stytta hana. Það kom oft á tíðum kafli sem var of langur sem hefði matt vera styttri og meira i gangi. En samt sem áður hrikalega töff mynd og mæli eindregið með henni.

Laugardagur

Leikur á mót FH um hádegið. Árni Þór var með okkur i 1 skipti eftir aðgerðina og gaman að fá hann aftur . Þó svo að hann geti nu ekki dúndrað á ramminn af viti þá er hann góður spilari og er hætturlegur. Vonandi að hann komist i gang sem fyrst. Leikurinn var jafn svona framan af þó að FH ingarnir hafi verið meiri hlutann yfir. Við hefðum getað jafnað i stöðunni 25-24 en klikkuðum og þeir naðu að skora og heldu forystunni restinni af leiknum og enduðu 31-26 með 5 marka sigri. Ágætis leikur , og margir góðir hlutir. Hauka leikurinn var hins vegar frábær .

Ég ,heiddi og atli vorum svo eftir i Rvk þvi það var leikur i bikarnum daginn eftir í 2.fl á moti Fram.

Þar sem litið sem ekkert er hægt að gera á Akureyri;) um helgar þó maður sé nu buinn að reyna gera e-h ser til skemmtunar ákvað ég að sýna Heidda hvernig maður gerir þetta í Rvk.

Var fjölskyldumatarboð heima hja mömmu  fyrr um kvöld sem var hrikalega gaman og litli frændi var aðsjalfsögðu mættur með Ásrúnu og Himma.


Ég og litli frændi;) Daníel Snær

Ég fór með Heidda í pool um kvöldið. Fórum niðri lágmúla þar sem besti staðurinn er og tókum klst í pool. Við náðum 4 leikjum og Heiddi vann 3 af 4 sem er hrikalega slakur árangur hja mér. Ég átti ekki breik á timabili og var orðinn ansi pirraður. En eg mun hefna fyrir þetta næst þegar við tökum pool.


Heiddi Legend er pool meistari



Sunnudagur

Leikur við fram í bikarnum i 2.flokki kl 15:30 í safamýrinni.  Strákarnir komu i flugi i bæinn og hittum við þá i Framheimilinu. Þetta voru 8 liða úrslit. Leikurinn var jafn til að byrja með. Staðan var til að mynda 11-11 á timabili eða þegar 20 min voru bunar. Við gáfum svo í og skildum þá eftir i hafleik. Þeir áttu ekki breik i seinni hafleik og unnum við 45-30 eða 15 marka nokkurn veginn sannfærandi sigur.;) Allir að spila mjög vel og flestir með 5-8 mörk i liðinu sem er gott. Við erum bunir að vinna alla leikina i deildinni eða 11 talsins og 2 i bikarnum og erum nuna komnir i undan urslit sem er ágætis árangur hja okkur.


Tölfræðiskýrsla



Karlar
Konur Dagsetning 18.01.2009





Heimalið Gestir Leikslok A B

Fram Akureyri 30 45




Nafn Skot varin Mörk fengin á sig

6 metrar Víti 7 metrar + Samt. 6 metrar Víti 7 metrar + Samt. Hlutfall
Elmar 5 0 11 16 10 2 12 24 40%

Óli 3 1 1 5 2 1 3 6 45%




















Nafn Tæknimistök Skot á mark

Skref Tapaður bolti Ruðningur Samt. Mark Varið Framhj-Stöng Samt. Skotnýting
Heiðar
1 1 2 8 2 1 11 73%

Hákon
3 1 4 6 1 0 7 86%

Oddur
2
2 8 1 3 12 67%

Gummi


0 3 2 1 6 50%

Ágúst


0 1 1 0 2 50%

Atli

1 1 4 2 2 8 50%

Anton


0 8
2 10 80%

Fannar
1 1 2 2 1
3 67%

Jón Þór
1
1 1

1 100%

Dóri 1

1 1

1 100%





0 42

42






0


0






0


0






0


0




Leikskýrslan úr leiknum við Fram. Hrikalega góður árangur hja liðinu i heildina.


Fimmtudagur 22.janúar
Þá koma Víkingar i heimsókn i 1 leiknum i deildinni eftir áramót i meistaraflokki. Það verður eflaust hörkuleikur enda mikið í húfi hja báðum liðum og sérstaklega okkur ef við ætlum okkur að vera í toppbaráttunni sem er klárlega stefnan. Menn eru orðnir spenntir fyrir 1 leiknum og verður þetta skemmtilegt.


Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.........





» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 00:00:45 / antonrunars

Þetta byrjar um helgina!!

Þar sem áhuginn á þessari síðu er fáranlega mikill er kominn timi til að henda inn nokkrum færslum svona inn á milli mörgum til mikillar lukku. 

Það þetta verður e-h bio eins og einhver myndi kalla það en þetta mun einkennast af handboltarugli, hlutum sem skipta litlu sem engu máli og hlutum sem skipta gríðarlega miklu máli. Þetta verður allskonar vitleysa sem hægt er að brosa af og skemmta sér yfir. Video og myndir af þvi sem er að gerast á Akureyri svo fólk i Rvk geti fylgst með gangi mála, sturtuferðir ......sjáum til! Handboltaferðalög,leikir og margt fleira. Ef þú hefur áhuga máttu endilega fylgjast með ef ekki slepptu þvi þá!

Liking it!!!!!!!!!



Idol Stjarnan árið 2009! Takk fyrir..





Anton Rúnarsson


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 14:33:37 / antonrunars

FH 32-Akureyri 34

Þá er stórleiknum lokið sem spilaður var uppí Kaplakrika. Honum lauk með 2 marka sigri okkar og efsta sætið staðreynd sem Akureyri hefur aldrei verið í áður.

Leikurinn byrjaði skelfilega hja okkur og lentum við undir 5-0 eftir 4 1/2 min. Við vorum alltof hægir i sókninni, engin hreyfing og við engan veginn að finna okkur. Við náðum svo að komast ínn i leikinn en aldrei til að ógna FH-ingunum af e-h viti. Staðan i halfleik var 16-13 fyrir FH. Seinni hafleikurinn var allt annar en fyrri. Við náðum að minnka muninn i 18-17 eftir aðeins 4 minutna leik. En þá vöknuðu FH ingar aftur til leiks og skoruðu nokkur góð mörk á okkur og voru komnir með 4 marka forystu 23-19. Þetta var ekki góður kafli hja okkur eftir að hafa komið til baka i byjrun seinni hafleiks. Þegar 10 min voru eftir af leiknum fór að koma hrikaleg spenna í húsið. Þetta var báratta um efsta sætið milli 2 hörkuliða sem hafa komið hvað mest á óvart og hafa verið með flesta áhorfendurn á leikjum hja sér. FH stuðningsmennirnir og norðan mennirnir mynduðu stemningu sem varla hægt er að lýsa á lokasprettinum. Við spiluðm frábærlega það sem eftir var af leiknum. Við jöfnuðum loksins 27-27 og komust svo yfir þegar 6 min voru eftir af leiknum. Þetta endaði svo með 2 marka sigri. Þegar leikurinn var flautaður af trylltumst við af gleði og hoppuðum ut um allt til að fagna með okkar mönnum og þakka fyrir stuðninginn. Það voru um 900 manns a leiknum sem er frabært.

Í okkar liði var Árni Þór gríðarlega sterkur og skoraði 11 mörk og var okkar aðalmaður i sókninni. Andri Snær skoraði mikilvæg mörk i lokin ur horninu og stoð fyrir sinu. Jónatan stjórnaði spilinu ásamt mér og komust við ágætlega vel frá leiknum. Byrjuðum reyndar ílla en komum sterkir inn í seinni halfleik þegar reyndi hvað mest á. En 2 stig i hús og getum við sætt okkur við það.

Ég var svo eftir i rvk ásamt heidda og Oddi þvi við vorum að spila með 2.flokknum a föstudeginum við fjölni sem við unnum með 26 mörkum og svo spiluðum við HK á laugardeginum sem við unnum með 1 marki.

Ég vann i valsheimilinu alla helgina og var það gaman eins og alltaf;) Nóg að gera og maður er alltaf tilbuinn til að hjalpa enda var ég og er enn að vinna i valsheimilinu þegar ég er i bænum um helgar.

Núna er maður bara að einbeita sér að leiknum stóra sem er annaðkvöld en þá koma Haukar í heimsókn. Það er mikil eftirvænting i bænum fyrir leiknum enda Akureyri á toppnum og allir hrikalega stoltir af þvi. Það var byrjað að selja miða i forsölu á laugardag og gekk það vel ásamt þvi að na að selja nokkra ársmiða i viðbót. Stemningin i höllinni er orðin þekkt ut um allt land nuna og það vita það allir þeir sem hafa komið norður og spila við Akureyri. Það er stefnan að slá aðsóknarmet a leikinn annaðkvöld. Það verður allt lagt i sölurnar að gera þetta sem flottast fyrir folkið og hef ég fulla trú á þvi. Ég er að fara spila minn fyrsta heimaleik fyrir Akureyri og get ekki beðið eftir að taka þátt. Þetta verður gaman.

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...farinn að æfaaaaaaaa! Litið annað hægt að gera herna nema kannski fara í keilu...;) hver nennir þvi? E-h sem býðir sig fram til að koma með mér ?

Rúnarsson.....




» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 14:24:22 / antonrunars

FH-Akureyri i kvöld!!

http://www.akureyri-hand.is/akureyrimerkinytt.gifÁgæti viðtakandi

Eins og þú hefur vonandi tekið eftir þá hefur verið mikil stemming meðal stuðningsmanna Akureyrar Handboltafélags á heimaleikjum hér á Akureyri. Nú er mikilvægt að stuðningsmenn liðsins sýni sömu stemmingu og kraft á útileikjum og því erum við að vinna að því að koma okkur upp stuðningsmannaneti á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Þrátt fyrir tap í bikarleiknum á sunnudaginn var frábær stemmning á leik FH og Akureyrar í Kaplakrikanum á sunnudaginn og nú ríður á að koma af enn meiri krafti á leikinn í Hafnarfirði í dag.

 

Það væri vel þegið að þú myndir áframsenda þennan póst á vini og kunningja sem þú telur að myndu hafa áhuga á að mæta og styðja liðið í dag en leikurinn er kl. 19:30 í Kaplakrika eins og kemur fram í fréttinni hér að neðan.

Einnig viljum við vekja athygli á heimasíðu félagsins þar sem er hægt að fylgjast með stöðu mála hjá félaginu.

 

Með kveðju

Stjórn Akureyrar Handboltafélags

http://akureyri-hand.is

 

Leikur dagsins: Útileikur gegn FH í Kaplakrika
Akureyrarliðið fer aðra ferð í Hafnarfjörðinn í dag og mætir FH öðru sinni í Kaplakrikanum klukkan 19:30. Að þessu sinni er um að ræða útileik í N1 deildinni og ljóst að það lið sem fer með sigur af hólmi verður eitt á toppnum í deildinni að honum loknum. Akureyrarliðið er staðráðið í að gleyma seinni hálfleik bikarleiksins á sunnudaginn og gefa allt í þennan leik enda förum við í alla leiki til að sigra.


Það er farið að vekja mikla athygli hve öflugir stuðningsmenn Akureyrarliðsins hafa verið á síðustu útileikjum og nú heitum við á alla sem vettlingi geta valdið til að leggjast á eitt með liðinu til að knýja fram sigur á FH það er allavega á hreinu að leikmenn Akureyrar ætla ekki að fara suður í dag til þess að tapa þriðja leiknum gegn FH á þessu tímabili.

Nú verða menn að halda einbeitingu allan leikinn því að með leikgleðinni og stemmingunni sem einkennir liðið eru því allir vegir færir og þegar bestu áhorfendur landsins mæta einnig til leiks eru allar horfur á að ævintýrin haldi áfram að gerast.



Stemmningin var Akureyrar megin i síðasta leik. Við ætlum að bæta hana og gera hana enn meiri!!


Áfram Akureyri!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 17:43:24 / antonrunars

1 leikurinn með Akureyri!!

Þá er maður búinn að spila sinn 1 leik fyrir nýja félagið Akureyri handboltafélag. Við spiluðum á móti FRAM seinasta fimmtudag í Reykjavikinni og var leikurinn kl 19:30 eins og venjulega. Það var ákveðinn spenningur fyrir 1 leik enda gaman að koma inn í alla þessa stemmningu sem Akureyri er búinn að skapa sér i undanförnum leikjum. Ég byrjaði leikinn i v.skyttunni og var mjög sáttur með það. Framarar byrjuðu betur og eftir 10 min voru þeir yfir 7-5. En við náðum okkur i gang og vorum yfir í hálfleik 16-13. Seinni hálfleikur áttum við algjörlega, við komust i 8 marka forystu og áttu þeir ekki breik meðan við hvernig við vorum að spila leikinn. Þeir náðu svo aðeins að minnka muninn i endann en leikurinn endaði með sannfærandi 5 marka sigri hja okkur 33-28.

Ég átti ágætis leik að minu mati. Skoraði 5 mörk og átti nokkrar stoðsendingar. Það var gríðarleg stemmning i húsinu hja okkar mönnum. Það voru ekki margir Akureyringar á pöllunum en þeir létu vel í ser heyra og áttu húsið. Það var þvilik stemmning i liðinu og gaman að taka þátt i þessu með þeim. Ég er mjög bjartsýnn á timabilið og með þessu áframhaldi erum við til alls liklegir. Það er alveg klárt mál. Með svona sterka liðsheild og allir tilbunir að leggjast á eitt eru allr dyr opnar.

Ég var svo eftir í Rvk um helgina til að vinnia og æfa þvi ég mátti ekki spila með Akureyri í bikarnum á sunnudaginn á mot FH þvi eg var buinn að spila með Val. Það var mjög svekkjandi að sitja uppi stukunni og mega ekki taka þátt. En Akureyri tapaði leiknum 37-31 og þar með dottnir ur bikarnum. En við eigum að spila við FH aftur i deildinni á fimmtudaginn kemur og þá verð ég með og vonandi getum við bætt fyrir tapið í bikarnum. Það verður án efa hörkuleikur enda 2 topplið i deildinni að mætast samkvæmt stigatöflunni.



Þetta verður alvöru leikur enda bæði lið komið hrikalega á óvart i deildinni og verið að spila skemmtilegasta boltann að mati margra.

Ég er mjög spenntur fyrir leiknum og ætlum við okkur klárlega sigur i leiknum. Núna er maður bara einbeita sér að leiknum og æfa vel fyrir hann.

Það er nú litið sem ég get gert hérna fyrir norðan eins og staðan er í dag. Ég er i fjarnami í skólanum og gengur það ágætlega. Eina sem maður gerir hér nuna er að æfa 2 á dag og kikja á námsefnið í skólanum. Það er verið að reyna redda vinnu fyrir mig svo maður hafi e-h að gera enda getur það verið leiðinlegt að gera ekki neitt i langan tíma þó svo að það sé gaman að æfa mikið. Eina vinnan sem hefur komið upp til tals er að kynna e-h íþróttadrykk sem er að fara koma á markaðinn skilst mer. Ég á eftir að kynna mer þetta betur en þetta stendur allavega til og hver veit nema það gæti orðið helviti skemmtilegt verkefni.

Ætla nu ekki að hafa þetta lengra i bili. Ég vil þakka öllum þeim sem komu á leikinn á moti Fram, það var gaman að sja fjölskylduna og vinina á leiknum.;)

ÁFRAM AKUREYRI;)




» 0 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 23:35:17 / antonrunars

Kominn til akureyrar að spila og æfa!!

Jæja þá er maður kominn til Akureyrar loksins eftir 4 tima akstur i dag. Ég lagði af stað kl 12:00 i morgun og var kominn um 16:00 leytið. Þetta tók sinn tima  en gerðist hratt að ég fór til Akureyrar að spila með Akureyri handboltafélaginu mikla. Ég naði að kveðja alla mina nánustu i gærkveldi þegar ég fór i það erfiða verkefni að heimsækja þau. Ég fór svo i valsheimilið i morgun að taka skóna mina og fleira dót sem var það síðasta sem ég tók með mer ásamt þvi að kveðja alla i Valsheimilinu. Það er erfitt að fara fra e-h góðu sem maður er kominn í og myndi  eg ekki vilja skipta á þvi og e-h öðru. En i þessu tilviki var undantekning, ég er að fara norður til að spila og æfa eins og brjalæðingur til að bæta mig i þvi sem eg þarf að bæta og fa að spila meira en eg er buinn að gera. Þess vegna fór eg norður til að fa reynsluna sem skiptir svo ótrulega miklu mali.

Stundum þarf maður að fórna ýmsu til að fá e-h betra í staðinn.En eg efast ekki um að þetta hafi verið rétt ákvörðun alveg langt fra þvi. Ég bý með Pabba gamla herna og konu hans sem er frabært. Ég er með sérherbergi og lýtur þetta mjög vel ut. Amma og afi búa herna stutt fra og er eg ekki buinn að hitta þau af e-h viti i nokkur ár og finnst mer það alveg ferlegt. Ég ætla að bæta úr þvi fyrst maður er kominn hingað.

1 æfinging með Akureyri
Hún gekk mjög vel. Það var vel tekið á mot manni og fullt af fólki sem maður kynnist með hverjum degi herna sem hafa trú a manni og hlakka til að sja mann spila. Það er góð tilfinning. Ég mun reyna gera allt sem ég get til að standa mig og þroskast sem leikmaður. Það tekur sinn tíma þegar maður kemur inn i nýtt lið þar sem eru nýjir leikmenn,nýr þjalfari,nýtt fólk,nýjir áhorfendur,ný leikkerfi það spilar allt inn í en eg hef litlar sem engar áhyggjur að þetta fari allt vel og eg get keyrt til baka þegar timabilið er buið stoltur og ángæður með mitt framlag og mina frammistöðu til liðsins. Þetta verður bara gaman að takast á við nýtt æviintrýri,nýjar áskoranir og ný markmið. Það er mikil tilhlökkun i mer fyrir timabilið með Akureyri og 1 leikinn sem er á fimmtudaginn. FRAM-AKUREYRI! Það verður hörkuleikur.




Ég eftir að sakna ykkar allra...

Litlu strákanna minna i Val (6.fl og 7.kk) sem er alveg ömurlegt að fara fra þegar þetta er rett að byrja...

Fjölskyldu minnar i Rvk

Öllum minum vinum...

Alla í Val(leikmenn og þeim sem eg var að vinna með)

En viti menn ég kem aftur.......

Ég vil þakka fyrir öll sms-in,hringingarnar og allar kveðjurnar fra ykkur..virkilega fallegt af ykkur!

Gott að vita af stuðningi ykkar þvi an hans væri þetta ansi erfitt...

En nóg komið af væmnis rugli.....

2 æfingar á morgunn og ekkert kjaftæði!!!!!!!!;)

Rúnarsson biður að heilsa ykkur,
endilega commenta ef þið hafið áhuga a þvi;)



Ég mun sakna þessari manneskju mest!!
Ég og mamma gamla;)





» 3 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 18:13:46 / antonrunars

Við spyrjum að leikslokum!!


1. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Anton Rúnarsson til liðs við Akureyri Handboltafélag

Þau tíðindi voru að berast að ein af efnilegustu skyttum yngri kynslóðarinnar hafi ákveðið að ganga til liðs við Akureyri Handboltafélag. Sá heitir Anton Rúnarsson og hefur verið í herbúðum Vals undanfarin ár. Anton er tuttugu ára gamall og leikur því einnig með 2. flokki en hann hefur orðið Íslandsmeistari og bikarmeistari með Val bæði í meistaraflokki og 2. flokki, þá hefur hann verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands undanfarin ár.

Anton er uppalinn á Akureyri og hóf sína handknattleiksiðkun hér í bæ á yngri árum en hann er sonur Rúnars Antonsonar. Í sumar gerði Anton þriggja ára samning við Val og því varð það samkomulag milli Vals og AHF að Valur myndi lána Anton til AHF í vetur og Anton því snúa aftur norður til Akureyrar þar sem fjölskylda hans býr.

Anton mun mæta á sína fyrstu æfingu með Akureyri Handboltafélagi á mánudaginn og hyggst berjast af krafti fyrir sæti í liðinu. Við bjóðum hann velkominn heim aftur og efumst ekki um að kraftar hans muni nýtast liðinu í baráttunni sem framundan er.


Kem með ítarlega færslu a næstu...nenni ekki að skrifa eitt eða neitt buinn að vera bullandi veikur siðust viku. Missti af öllum leikjunum með landsliðinu minu og gat ekkert tekið þátt i neinu. Ég legg af stað norður á morgun.

Rúnarsson ...







» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 16:59:34 / antonrunars

Skotæfingar með Degi Sigurðssyni

Það er alltaf nog að gera!

Ég er að vinna alla daga i Valsheimilinu fra 8-4 og fer svo beint að þjalfa og svo tekur við æfing i meistara kl 17:30 og hun er buinn sirka 19:00. Það er mjög þægilegt að vinna niðri Val þvi eg mæti i vinnuna sirka 8-9 og er allann daginn á sama staðnum sem einfaldar nátturulega allt fyrir manni. Ég er einnig að klara bóklega hlutann i smiðnum og er þvi i fjarnami og get stundað það reglulega þvi eg tek tölvuna með mer i vinnuna.

Það sem er langbest við að vinna í íþróttahúsi er að maður getur æft allann daginn. Við erum með 4 sali, lyftingarsal,potta,teygjuherbergi og allt það helsta sem maður þarf til að na árangri. Ég vill bæta mig i handbolta og verða betri og fekk ég þvi Dag Sigurðsson fyrrverandi landsliðsfyrirliða,fyrrum atvinnumann til margra ára, nuverandi landsliðsþjalfari Austurrikis og siðast en ekki síst framkvæmdastjóra Vals til að taka mig,Orra,Jóa og Ingvar á skotæfingar nokkrum sinnum i viku. Ég efast um i fljótu bragði hvort það se hægt að finna betri mann til að hjalpa og kenna manni hvernig maður á að gera hlutina. Hann er ekki bara að hjalpa manni með skot heldur fullt af öðrum hlutum eins skotógnun,hreyfingu án bolta,varnavinnu, og fleira sem maður ætlar að nýta og læra fra þessum meistara. Ég er að taka allar þessar æfingar uppá video og jafnvel að eg klippi þær e-h saman og sýni her á siðunni.

Við unnum frábæran sigur i gær á Haukum 35-23 sem er 12 marka sigur á nuverandi íslandsmeisturum. Vörnin,sóknin,hraðaupphlaup,markvarslan i fyrri háfleik skilaði okkur 13 marka mun í fyrri hafleik. Staðan var 21-8. Ég hef sjaldan séð eins vel spilaðan háfleik að okkur halfu i langan tima. Seinasti leikur okkar var a moti FH og spiluðum við fyrri hafleikinn þar eins og halfvitar. Það var allt annað að sja til okkar i gær og ef við höldum svona áfram verður erfitt fyrir önnur lið að koma i Vodefonehöllina(gryfjuna) og ætla reyna taka stig af okkur. Það kemur ekki til greina. Erfitt að taka e-h ut i leiknum i gær enda allir að spila vel fyrir utan mig sem átti hræðilega innkoma i leikinn. Skaut 4 sinnum á markið, 1 mark með vinstri??1 linusending sem skilaði marki, 1 unninn bolti i vörn en hitt var bara gjörsamlega ut af kortinu. En það kemur leikur eftir þennan leik og maður þarf bara að æfa meira og meira til að vera betri.

Ég lét Helga meistara sem vinnur herna i valsheimilinu taka æfinguna i dag uppá video og ákvað áður en æfingin byrjaði að taka e-h gott video af honum inní klefa þar sem að það var svona hrikalega góð stemning fyrir æfinguna.







Hann er snillingur i fimleikum og hefur m.a verið á Olympiuleikum í Kína og fengið silfur,brons og fleiri viðurkenningar.

Hann ákvað að taka sma spor enda mikill áhugamaður um breik og rappið....;)

Anton Rúnarsson

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 16:06:59 / antonrunars

Valur-Haukar

Valur  Vs

Haukar





Miðvikudaginn 15.Oktober 2008! kl 19:30!!

Leikurinn er í Vodafonehöllinni.


Við hvetjum ykkur öll til að mæta á leikinn og sja 2 hörkulið spila góðan og hraðann handbolta eins og hann gerist best hér á Íslandi. Það er gríðarlega mikilvægt að fa sem flesta til að mæta á leiki og standa við bakið á okkur. Við þurfum á stuðningi að halda og það væri frabært að sja höllina okkar fulla af áhorfendum og nýta þessa frabæru aðstöðu sem við höfum og gera hana að erfiðasta útivelli í deildinni. Við ætlum okkur að sigra Haukana og við getum vel gert það með frábærum stuðningi fra ykkur.


Mætum öll á völlinn og styðjum flottasta liðið...

ÁFRAM VALUR!!!!!!!!!!!!!!!!;)



» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 23:16:00 / antonrunars

Framarar teknir í bakaríið!!

Spiluðum við Framarana seinasta fimmtudag og stefndi þetta allt i hörku leik en svo varð ekki. Við byrjuðum leikinn miklu betur og var staðan orðinn 10-3 okkur i vil. Með hrikalega góðri markvörslu frá fyrirliðanum sjalfum Ólafi Hauki Gíslasyni sem hreinlega lokaði rammanum og varði hvert skotið á fætur öðru. Hann ásamt góðri vörn skilaði okkur 8 marka sigri i þessum leik um Reykjavikurstoltið og baráttuna um efsta sætið sem við erum nú í. Það er nú litið hægt að segja um þennan leik, allir að spila vel hja okkur og liðsheildin stóð fyrir sínu.

Það er eitt af markmiðum okkar að gera Vodafonehöllina að "ljónagryfju" þegar komið er í leik og tókst það agætlega þó svo að maður hefði viljað sja fleira fólk a´vellinum. Einungis 400 manns voru mættir á leikinn. Það var ljósashow fyrir leikinn og flott kynning þó það hafi vantað tónlistina með en vonandi að fleiri mæti og mynda góða stemmningu sem gerir leikinn nátturulega töluvert skemmtilegri bæði fyrir leikmenn og áhorfendur.Við vonum það besta á næstu leikjum.

Við drógumst gegn HK í 32-liða bikarúrslitum sem fram fer í Vodefonehöllinni annaðkvöld kl 19:30. Það verður athyglisverður leikur. HK menn hafa skipa góðum leikmönnum eins og við og held ég að þetta verðir spennandi leikur og ræðst liklegast ekki fyrr en undir lok leiks.

Ég hvet alla til að mæta og horfa á 2 frabær lið keppast um að komast í 16 liða úrslit bikarkeppninnar. Við urðum bikarmeistarar á siðustu leiktíð og ætlum okkur að verja titilinn. Það er alveg klart mál. Það kemur enginn á okkar heimavöll og tekur það af okkur.

http://www.valsmyndir.com/bikarhand2008/slides/DSC_0181.jpg

Bikarmeistarar 2008 eftir sigur á FRAM!




Eimskipsbikar karla 32 liða úrslit

 Vodafonehöllin Mánudagur 06.10.08 kl 19:30



Mæta...........................?

Jáááá...!;)

Anton



» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 17:05:09 / antonrunars

Leikur i kvöld!!!!!!!!!!

1 Heimaleikurinn okkar í Vodafonehöllinni kl 19:30!!


Valur-Fram

-Fullt af fólki-

    -Geðveik kynnig-

             -2 hörkulið að mætast-

       -Reykjavikurstoltið-

                    -Góður Íslenskur Handbolti-

             -Góð skemmtun fyrir alla-


Mæta? Klárt mál!!
Valsmenn mæta HK á mánudaginn kemur

Anton Rúnarsson



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 01:08:28 / antonrunars

Hvað sagði Sigfús Sigurðsson um Ivano Balic?

Það er einn leikmaður sem eg gjörsamlega dýrka og það er kóngurinn sjalfur Ivano Balic. Ég bara fæ ekki nóg af þvi að skoða youtube video/klippur af þessu manni. Hann er að minu mati einn besti handknattleiksmaður sem hefur sést á handboltavellinum hingað til. Að horfa á þessar klippur með manninum er ótrulegt. Hann nær alltaf að brjótast i gegn,skora,finta mennina,senda á linuna og eg veit ekki hvað og hvað. Hæfileikarnir sem þessi maður hefur er bara rugl.

Ég veit aðeins um einn mann(þeir eru reyndar nokkrir) sem hefur spilað á moti honum og það er Sigfús Sigurðsson landsliðsmaður og leikmaður Vals nuna. Eins og eg sagði i sviganum eru heldur fleiri íslendingar sem hafa spilað á moti honum en þar sem Sigfús er að spila með mer í Val ákvað eg að spurja hann út i þennan ágæta leikmann.

Hvernig er að spila á moti Balic? Við ræddum þetta eftir æfingu áðan og það var margt fróðlegt að vita. Hann sagði : Balic er mjög likamlega sterkur, (hann er 189 og 91 kg tekið af netinu) ,hann er ekki mikið fljotari en aðrir leikmenn ne hærri en hann er mjög sterkur 1 á 1, eða maður á mann. Hann er snöggur að skjóta, hugsar mikið fram í timann, þar að segja hann er alltaf skrefinu á undan manni vegna ótrulegs skilings á leiknum. Ólafur Stéfánsson er með hrikalega góðan leiksskiling og þar að leiðandi finnur hann í 95% tilvika alltaf manninn sem er dauðafrír inná linu eða annarsstaðar á vellinum.

Balic er ákveðinn i þvi sem hann gerir og ef hann ætlar ser að gera e-h þá gerir hann það. Hann gefst aldrei upp og honum er slett sama hvort hann skori 1 mark eða 10 svo framarlega sem liðið vinnur leikinn. Það eru mörg ótruleg mörkin sem hann hefur skorað og sja hvernig hann platar varnarmennina sem eru nu oft höfðinu hærri en hann sjalfur og i flestum tilvikum mun likamlega sterkari en hann það er ótrulegt. Ástæðan fyrir þvi að hann se einn besti miðjumaður í heimi er allt það sem her stendur að ofan og lika hversu sterka tilfinningu hann hefur fyrir leiknum. Það er alltaf hægt að treysta á hann og alltaf gríðarleg ógnun frá honum þó svo að hann se ekki buinn að skora mikið i leiknum þvi hann kemur liðsfélugunum alltaf í færi.

Ivano Balic-43 Master one plays- EURO 2008



Snillarvideo frá þessum snillingi og þið getið séð hvað ég er að tala um!!


Kv. Ivano Balic


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 12:15:38 / antonrunars

Vals dagur í dag!

Stjarnan-Valur kl 14:00 Kvenna

Stjarnan-Valur kl 16:00 Karla


Það verður nog um að vera í Garðabænum í dag. Fyrst keppa stelpurnar og svo við beint a eftir þeim.

Það var æft vel í vikunni og held eg að við séum vel undirbunir fyrir þennan mikilvæga leik . Það skiptir miklu mali að byrja motið vel og lenda ekki í e-h ströggli i byrjun. Við byrjuðum hrikalega ílla í fyrra og töpuðum fyrstu 3 leikjunum og var það okkur að falli um titilinn ásamt öðrum atriðum. Það ma ekki gerast aftur. En við stefnum aðsjalfssögðu á sigur eins og alltaf og ætlum við taka a þvi a moti Fannari og vinum.


Morgunmatur i morgun

Stjórnin tók sig til og bauð meistaraflokki vals bæði í kvenna og karla uppá flottan morgunamat i morgun. Það var farið yfir komandi timabil,umgjörðina i kringum leiki, liðið sjalft og fleira sem áhugavert var að hlusta á. Það var góð stemning i matnum og vonandi að hun verði enn betri i leiknum á eftir.

Ég skil bara ekki afhverju HSÍ og KSÍ eru að setja leikina i meistaraflokknum á sama tíma á sama degi. Kl 16:00 spilum við á moti stjörnunni og á sama tima er Valur-KR á vodafonevellinum. Landsbankadeildin er að klárast í dag og mikil spenna er í gangi þar um hverjir verða íslandsmeistarar og meira til. Það er fáranlegt að báðir leikir Vals séu á sama tima og þvi þurfa stuðningsmenn Vals a velja a milli hvor leikjanna þeir ætla fara á.


2.Flokkurinn byrjar svo næstu helgi á sunnudegi. Við mætum þá Vikingi i 1 leik. Meðan við hvernig planið er í 2.flokknum þá verða 95% af öllum leikjunum spilaðir á sunnudegi sem er gjörsamlega út i hött. Sunnudagar eiga vera frídagar þvi það eru jú einu dagarnir sem maður fær eitthvað frí til að slaka á og gera eitthvað annað. En mer skilst að það eigi eftir að breyta planinu eitthvað þannig að allir geti verið rólegir yfir þessu.

Nóg i bili...

Anton Rúnarsson!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Textabox
AR
Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 59698
Könnun
Ertu sátt/ur með lífið eins og er?
6 atkvæði

Nei
0 atkvæði

Ekki alveg eins og ég vildi
2 atkvæði

Léleg spurning!
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 9
Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill
Tenglar
Tenglar
Tenglar